Viðburðir
Hvenær
14. nóvember - 10. desember
Myndlistasýning Jóhönnu L. Jónsdóttur. Sýningin á Bókasafninu á Akranesi stendur frá 14. nóvember til 10. desember nk. Opið virka daga frá kl. 10.00 -18.00 og frá 11.00 -14.00 á laugardögum.
Jóhanna L. Jónsdóttir er fædd á Akranesi 1951.
Hún nam flísamálun í London á árunum 1986-1995 og starfaði við að myndskreyta flísar til margra ára.
Nám við Myndlistaskóla Mosfellsbæjar árið 2010.
Síðan þá hefur hún aðallega málað með olíu á striga, en nú sýnir hún myndir málaðar með alkohol bleki á sérstakan pappír og einnig á striga.
Þar flæða litirnir og mynda allskonar form.
Sýningin á Bókasafninu á Akranesi stendur frá 14. nóvember til 10. desember nk.
Opið virka daga frá kl. 10.00 -18.00 og
frá 11.00 -14.00 á laugardögum.