Rafbókasafnið

Rafbókasafnið í hnotskurn

  • Rafbókasafnið byggir á OverDrive rafbókaveitunni 
  • Þú þarft gilt bókasafnskort og PIN-númer hjá Bókasafni Akraness.
  • Þú skráir þig inn með Facebook eða sérstökum OverDrive-aðgangi en til þess að fá lánað þarftu að gefa upp númerið á bókasafnskortinu og PIN-númer í fyrsta skipti sem það er gert. 
  • Þú getur valið hvort þú færð bók að láni í 7, 14 eða 21 dag. 
  • Þú getur haft 5 bækur að láni í einu og sett inn 7 frátektir. 
  • Bók sem hefur verið tekin að láni skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum og því er engin hætta á dagsektum. Auðvitað er líka hægt að skila fyrr. 
  • Hægt er að lesa rafbækur eða hlusta á hljóðbækur frá Rafbókasafninu í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum og því er ekki nauðsynlegt að hlaða niður neinum forritum til þess.
  • Viljir þú lesa eða hlusta án þess að vera nettengd/ur þarftu að ná þér í OverDrive appið eða Adobe Digital Editions forritið og hlaða bókinni niður. 

OverDrive appið

  • OverDrive appið er fáanlegt fyrir iPhone, iPad, Android, Chromebook, Windows Phone, Windows 8 & 10, Kindle Fire HD og má nálgast t.d. í viðeigandi veitum svo sem Play Store og App Store. Lesa má nánar um appið og sækja það á http://app.overdrive.com/ 

Lesbretti

  • Hægt er að lesa bækur Rafbókasafnsins á þeim lesbrettum sem notast við ePub formið. Þetta eru flestar gerðir lesbretta aðrar en Kindle. Ekki er hægt að lesa bækur Rafbókasafnsins í Kindle lesbrettum að Kindle Fire undanskildu.
  • Ef ætlunin er að lesa rafbók á lesbretti þarf að stofna Adobe ID-aðgang og hlaða niður Adobe Digital Editions forritinu á tölvu. 
  • Bókinni er svo hlaðið niður í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.

Hafðu samband

  • Ef þú hefur einnhverjar spurningar eða ábendingar varðandi Rafbókasafnið sendu þá póst á bokaverdir@akranessofn.is