Leiðarljós

Bókasafn Akraness er almenningsbókasafn og er rekið af Akraneskaupstað. Bókasafnið starfar skv. bókasafnslögum nr. 150/2012. Hlutverk þess er að veita fólki, bæði börnum og fullorðnum, greiðan aðgang að fjölbreyttum bókakosti og öðrum miðlunargögnum, þar á meðal tölvubúnaði og upplýsingum á tölvutæku formi. Það skal efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og þekkingarmiðlum. 

Safnið skal á sínu þjónustusvæði kappkosta að vera menningarstarfi og atvinnulífi til styrktar og hafa tiltækar upplýsingar fyrir almenning um opinberar stofnanir og þjónustu. Markmið þess skal vera að efla íslenska tungu, stuðla að símenntun og örva lestraráhuga. Þjónustusvæði safnsins er Akranes, þ.e. einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir á Akranesi. Safnið leggur sig fram við að þjóna vel hverjum þeim sem til þess leitar. 

Persónuverndarstefna

Markmið

  • að veita íbúum á þjónustusvæðinu jafnan aðgang að bókmenntum, menningu, fróðleik og afþreyingu. 
  • að veita íbúum á þjónustusvæðinu jafnan aðgang að upplýsingum um bæjarfélagið, íslenskt samfélag og alþjóðleg málefni. 
  • að standa vörð um íslenska tungu. 
  • að styðja við einstaklingsmenntun, endurmenntun, símenntun og fjarnám. 
  • að hvetja börn og unglinga til lestrar með uppbyggilegu barna- og unglingastarfi. 
  • að safna og halda til haga átthagatengdu efni sem hefur sögulegt gildi fyrir héraðið. 
  • Þjónusta safnsins skal einnig ná til einstaklinga og stofnana og fötluðum tryggður aðgangur. 
  • Samstarf er við Héraðsbókasafn Borgarbyggðar. 

 

Yfirlýsing Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Unesco) um almenningsbókasöfn. 

Grundvallargildi mannsins eru frelsi, velmegun og framfarir samfélags og einstaklinga. Þessum gildum verður aðeins náð ef velupplýstir borgarar nota lýðræðislegan rétt sinn og taka virkan þátt í samfélaginu. Virk þátttaka og þróun lýðræðis byggir á fullnægjandi menntun sem og frjálsum og ótakmörkuðum aðgangi að þekkingu, skoðunum, menningu og upplýsingum. 

Almenningsbókasafn er hlið til þekkingar á hverjum stað. Það skapar frumskilyrði til ævimenntunar, sjálfstæðrar ákvarðanatöku og menningarþroska einstaklinga og þjóðfélagshópa.

Yfirlýsing þessi staðfestir trú UNESCO á almenningsbókasafni sem virku tæki til menntunar, menningar og upplýsinga og sem meginafli til að rækta frið og andlega velferð í hugum allra manna. 

UNESCO hvetur því ríki og sveitarstjórnir til að styðja við og taka virkan þátt í eflingu almenningsbókasafna.  

Almenningsbókasafn

Almenningsbókasafnið er upplýsingamiðstöð á hverjum stað og veitir notendum sínum aðgang að alls kyns þekkingu og upplýsingum. 

Þjónusta almenningsbókasafns er veitt á grundvelli jafnræðis og jafnrar aðstöðu allra manna án tillits til aldurs, kynþáttar, kynferðis, trúarbragða, þjóðernis, tungumáls eða félagslegrar stöðu. Sérstaka þjónustu og efni skal hafa á boðstólum fyrir þá sem ekki geta nýtt sér reglubundna þjónustu bókasafnsins af einhverjum orsökum, til dæmis minnihlutahópa, fatlaða og fólk á sjúkrastofnunum eða í fangelsum. 

Allir aldurshópar skulu finna efni sem svarar þörfum þeirra. Safnkostur og þjónusta þurfa að taka tillit til allra miðlunarforma og nútímatækni ekki síður en hefðbundinna gagna. Frumskilyrði er að safnkostur sé í háum gæðaflokki og henti aðstæðum á hverjum stað. Safnefni verður að endurspegla strauma og stefnur í þróun þjóðfélags og geyma jafnframt minningar um hugvit og ímyndunarafl mannsins. 

Safnkostur og þjónusta eiga hvorki að lúta hugmyndafræðilegri, stjórnmálalegri eða trúarlegri ritskoðun né þrýstingi frá viðskiptalegum hagsmunaaðilum. 

Markmið almenningsbókasafns

Eftirfarandi lykilmarkmið sem snerta upplýsingar, læsi, menntunog menningu skulu vera kjarninn í þjónustu almenningsbókasafna:

  1. að örva og styrkja lestrarvenjur barna frá unga aldri;
  2. að styðja einstaklingsmenntun og sjálfsnám svo og formlega menntun á öllum stigum; 
  3. að veita tækifæri til þroska sköpunargleði einstaklings;
  4. að örva ímyndunarafl og sköpunargleði barna og unglinga;
  5. að efla vitund um menningararf, gildi lista, vísindaafreka og uppgötvana;
  6. að veita aðgang að listviðburðum í öllum listgreinum;
  7. að hvetja til umræðu um menningarleg tengsl og menningarlega fjölbreytni;
  8. að stuðla að varðveislu frásagnarhefðar;
  9. að tryggja aðgang almennings að hvers konar opinberum upplýsingum:
  10. að veita fyrirtækjum, félögum og áhugahópum aðgang að viðunandi upplýsingaþjónustu;
  11. að auðvelda nám á sviði upplýsinga- og tölvuleikni;
  12. að styðja og taka þátt í starfsemi og dagskrárgerð til eflingar lestri fyrir alla aldurshópa og eiga frumkvæði að slíkri starfsemi ef þörf krefur. 

Fjármögnun, lagasetning og samstarf

í grundvallaratriðum á aðgangur að almenningsbókasöfnum að vera ókeypis. Almenningsbókasafnið er rekið á ábyrgð sveitarfélags eða ríkis. Það skal styrkja með sérstakri lagasetningu og fjármagna með framlögum frá ríki eða sveitarfélögum. Það skal vera í kjarna hvers kyns langtímastefnu á sviði menningar, upplýsingaþjónustu, lestrarátaks og menntunar.

Bókasafnskerfi hvers lands skal skilgreina og efla með lagasetningu og stefnumörkun sem byggir á samþykktum samstarfsreglum til þess að tryggja samhæfingu og samvinnu bókasafna á landsvísu. Almenningsbókasafnakerfi skal hanna í tengslum við landsbókasöfn, svæðisbókasöfn, rannsókna- og sérfræðibókasöfn svo og bókasöfn í grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum. 

Starfsemi og stjórnun

Móta skal skýra stefnu þar sem markmið, forgangsröð og þjónusta er skilgreind með þarfir sveitarfélags í huga. Almenningsbókasafn þarf að vera vandlega skipulagt og starfsemin að standast faglegar kröfur. 

Tryggja þarf samvinnu við þá aðila sem máli skipta svo sem notendahópa og aðrar fagstéttir bæði innan sveitarfélags, landshluta, á landsvísu eða á alþjóðlegum vettvangi. Allir íbúar sveitarfélags skulu eiga greiðan aðgang að almenningsbókasafni. Til þess að svo geti orðið þarf vel staðsettar bókasafnsbyggingar, góða lestrar- og námsaðstöðu, viðunandi tæknivæðingu og nægilega langan og hentugan opnunartíma til að mæta þörfum notenda. Jafnframt þarf að efla þjónustu við þá sem ekki komast til bókasafnsins. Bókasafnaþjónustu þarf að laga að mismunandi þörfum samfélags hvort sem er í dreifbýli eða þéttbýli.

Bókavörður er virkur tengiliður milli lánþega og þekkingar. Fagþekking og næg endurmenntun bókavarða er ómissandi þáttur í því að tryggja viðunandi þjónustu. Veita þarf virka þjónustu og skipulagða notendafræðslu til þess að notendur geti haft fullt gagn af öllu því sem almenningsbókasafnið hefur upp á að bjóða. 

Framkvæmd yfirlýsingarinnar

Yfirvöld í hverju landi og hverju sveitarfélagi svo og bókasafnsnotendur um allan heim eru hér með hvattir til að framkvæma þau ákvæði sem lýst er í þessari yfirlýsingu.

Unesco Public Library Manifesto endurskoðuð útgáfa 1994 - Þýðing: Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir