Á þessum fræðandi og hagnýta fyrirlestri fá foreldrar innsýn í ungbarnanudd, aðferð sem er notuð um allan heim til að styðja við tengslamyndun, ró og vellíðan fyrstu mánuði og árin í lífi barnsins. Rannsóknir benda til þess að ungbarnanudd geti meðal annars stuðlað að betri svefni, hjálpað við meltingaróþægindi og magaverki, auk þess að efla samskipti og samveru foreldra og barna.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um:
Einnig verður stutt sýnikennsla þar sem foreldrar læra einfaldar strokur fyrir fótleggi og fót barnsins.
Ef barnið er sofandi, vill fylgjast með eða er ekki upplagt í nudd geta foreldrar æft strokurnar á sérhönnuðum nudddúkkum sem verða á staðnum.
Hafdís Ósk Jónsdóttir er vottaður leiðbeinandi í ungbarnanuddi hjá International Association of Infant Massage (IAIM), heilsunuddari með yfir 20 ára starfsreynslu og kennslufræðingur. Hún hefur áratuga reynslu af því að vinna með fólki á öllum aldri og leggur áherslu á einfaldar og hagnýtar leiðir til að styðja við vellíðan, öryggi og líkamsvitund .
Fyrirlesturinn hentar foreldrum með börn frá fæðingu og fram að skriðaldri, jafnt þeim sem eru að eignast sitt fyrsta barn sem og þeim sem vilja bæta við þekkingu sína og verkfæri til daglegrar umönnunar.