Leikja- og listanámskeið

 
Dagana 16. - 20. júní (að undanskildum 17.), frá kl. 9 -12, verður boðið upp á leikja- og listanámskeið fyrir börn í 4. - 7. bekk. Námskeiðið er gjaldfrítt. Skráning á netfanginu bokaverdir@akranes.is, síma 433 1200 eða á safninu.
Hæ hæ og hó hó, langar þig að vita meira um írsku dagana, St.Patricksday, leita að fjögurra blaða smárum, töfrabókum, búa til dularfullt landakort, fara í rannsóknarleiðangra, skrifa ljóð, segja sögur, mála fána, valhoppa, sprella og finna hláturtaugarnar kitla niður í maga.
 
Í stuttu máli sagt ef svarið er já, er þetta námskeið fyrir þig. Um er að ræða fjögurra daga listanámskeið á vegum Bókasafns Akraness, þar sem nemendur virkja sköpunargáfuna í gegnum leik og útivist.
 
Vinnan mun fara bæði fram í Svöfusal ásamt því að farið verður í stuttar vettfangsferðir þar sem börnin dýpka þekkingu sína á náttúru og sögu Akraness.
 
Kennari námskeiðsins er myndlistarkennarinn og þjóðfræðingurinn Vilborg Bjarkadóttir sem hefur víðfeðma reynslu í því að kenna börnum skapandi nám.