Minecraft smiðjur 19. og 26. febrúar

Á námskeiðinu fá þátttakendur að spila saman á sérhönnuðum Íslandsheimi í Minecraft. Þátttakendur læra ýmis brögð og brellur varðandi hönnun á byggingum í leiknum og vinna saman í teymum við byggingu á mannvirkjum úr raunheimum. Við beitum landafræði til að finna réttar staðsetningar fyrir byggingarnar okkar og lærum í leiðinni ýmislegt um ýmis íslensk kennileiti.
Umsjón með námskeiðinu hafa minecraft sérfræðingar frá Skema í Háskóla Reykjavíkur. Hámarksfjöldi á námskeiðið er 15 börn. Aldur: 7-12 ára og engar hæfniskröfur gerðar. Ókeypis aðgangur.