Opið á laugardögum frá 1. október

Vetrarafgreiðslutími tók gildi 1. október og þá bættist við hefðbundinn afgreiðslutími á laugardögum, frá kl. 11 - 14. Laugardagar eru fjölskyldudagar og í vetur verður eitthvað um að vera á safninu á fjölskyldudögum. Fylgist með á Facebook-síðu safnsins. Verið velkomin að eiga notalega stund á bókasafninu, finna sér lesefni, nýjar bækur hrúgast inn, lesa blöðin og þiggja kaffisopa. Það er ekki grímuskylda á safninu - þitt er valið. Gestir eru beðnir að sýna aðgát, spritta hendur og nálægðarmörk eru 1 metri.