Rithöfundaspjall

Í fyrra buðum við rithöfundum til okkar í spjall og birtum það á fésbókarsíðu safnsins. Þetta féll svona líka vel í kramið svo við ákváðum að endurtaka leikinn í ár.

Við fáum til okkar höfunda sem eiga rætur að rekja til Akraness og eru að gefa út bækur fyrir þessi jól. Inga Ösp spjallar við þá, þeir kynna bækur sínar og lesa upp úr þeim.

Við eigum von á góðum gestum og fengum þann fyrsta til okkar í morgun en það var hann Dúi Landmark.

Fylgist með á fésbókarsíðu okkar því reglulega til jóla munum við birta þessi áhugaverðu viðtöl.