Skiptiplöntumarkaður - og söguganga

Ertu með afleggjara og langar í nýjar plöntur? Þá er tilvalið að koma á Bókasafni laugardaginn 19. mars milli kl 11-14. Katrín Leifsdóttir hússtjórnarkennari verður á staðnum og veitir hagnýt ráð.

Ef útvera í góðum félagsskap heillar þig , þá er upplagt að koma í sögugöngu með Kellingunum. Þær ætla að rölta um kirkjugarðinn og safnasvæðið. Létt ganga sem lýkur í Stúkuhúsinu. Kaffisopi. Gangan hefst kl. 11 við Írska steininn og tekur ca 1-2 klst.