Sumarlestur 2025

 

Sumarlesturinn 2025 er hafin og stendur hann til 12 ágúst. Írskt þema verður í sumar.

Börnin koma á bókasafnið, skrá sig í sumarlesturinn og fá afhent lesblað. Þau koma með bókasafnsskírteinið sitt og fá lánaðar bækur. Ef börnin eiga ekki bókasafnsskírteini verða þau að koma með foreldri/forráðamanni til þess að fá skírteini í fyrsta sinn.
Skírteini eru ókeypis fyrir börn. 

Börnin lesa bækurnar, skrifa titil þeirra og blaðsíðufjölda á lesblaðið og foreldri/forráðamaður staðfesta að þau hafi lesið bækurnar. Þegar börnin skila bókunum á bókasafnið eru þær skráðar, börnin fá stimpil fyrir hverja bók og mynd til að hengja á vegginn. 

Eftir að sumarlestrinum lýkur verður Húllum-hæ lokahátíð, þar sem boðið verður upp á leiki, léttar veitingar og happadrætti. Hátíðin verður þann 14. ágúst kl. 14:00.