Sýningarumsókn

Hjá okkur er aðstaða til að setja upp sýningar á veggjum, í sýningarkössum, á göflum bókahilla og fleira. Sýningar standa að jafnaði yfir í um fjórar vikur og eru þær opnar á afgreiðslutíma safnsins. Sýningaraðstaðan er lánuð endurgjaldslaust. Við mat umsókna er farið eftir hvernig sýning hentar sýningaraðstöðu safnsins og fjölbreytileika sýninga.

Sótt er um hér og er umsóknarfresturinn til og með 26. janúar 2024.

Öllum umsóknum verður svarað.

Athugið! Ekki verður tekið við fleiri umsóknum um Vökudaga.