Þema dagsins er búningadagur og við hvetjum bæði börn og fullorðna til að mæta í búningum. Kl. 12:00 koma fjöltyngdar prinsessur og sjóræningi í heimsókn og segja sögur á ensku, spænsku, pólsku og arabísku. Við búum til pokaskrímsli og búningaskiptisláin verður sett fram. Sýningar í fullum gangi.