RIE - örfyrirlestur á foreldramorgni

RIE - Fyrsta æviárið ... þar sem meðvitund, hæglæti og traust leiða í uppeldi ungbarna. Örfyrirlestur mánudaginn 3. apríl kl. 14.00. Hulda Margrét Brynjarsdóttir, Leið að uppeldi.

Vetrardagar á Bókasafninu

Það verður mikið um að vera á Bókasafninu Vetrardögum 16. - 19. mars. Jón Sverrrisson ætlar að segja okkur frá starfi sínu og Vinnuskólans, börnin á Akraseli verða með sýninguna Leikskólinn minn, Héraðsskjalasafnið verður með sýninguna Úr ólíkum áttum, verk úr listaverkaeign Akraneskaupstaðar. Á föstudaginn verður afleggjaskiptimarkaður á safnunu á milli kl. 16 og 18 og á laugardaginn bjóðum við börnum að ættleiða fræ. Gróðursetja fræ og merkja sér pottinn og fylgjast svo með því vaxa þar til það er tilbúið að fara heim.

Foreldramorgnar - umræður

Foreldramorgnar halda áfram á fimmtudagsmorgnum kl. 10 enn sem komið er, kannski kemur annað í ljós á þessum umræðufundi, hver veit. Hlakka til að hitta ykkur og spjalla, Hrafnhildur Maren.

Umsóknir fyrir sýningarárið 2023

Hjá okkur er aðstaða til að setja upp sýningar á veggjum og/eða í sýningarkössum. Sýningar standa að jafnaði yfir í um fjórar vikur og eru þær opnar á afgreiðslutíma safnsins. Sýningaraðstaðan er lánuð endurgjaldslaust. Við mat umsókna er farið eftir hvernig sýning hentar sýningaraðstöðu safnsins og fjölbreytileika sýninga.

Halldóra Jónsdóttir hættir

Halldóra Jónsdóttir lét af störfum sem bæjarbókavörður nú um áramótin og viljum við þakka henni innilega fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Óskum við henni velfarnaðar í framtíðinni. Við hennar starfi tók Ingibjörg Ösp Júlíusdóttir.

Afgreiðslutími um jól og áramót

Lokað á rauðum dögum, opið virka daga.

Heimildamynd frá sögugöngum Kellinga

Egill Helgason í heimsókn

Egill Helgason, hinn eini og sanni, kíkti á okkur í vikunni og skoðaði listaverkið af sjálfum sér eftir Tinnu Royal.

Jólasýning Jóhönnu Kristínar

Aðventusýning í Bókasafni Akraness Skagakonan Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir sýnir ýmsar jólahannyrðir sínar í Bókasafni Akraness. Hún hefur búið í Innri Akraneshreppi hinum forna og á Akranesi alla sína tíð, er fædd 1935, og starfaði sem hjúkrunarkona á Sjúkrahúsi Akraness og Dvalarheimilinu Höfða. Nú hefur hún sett upp sýningu á ýmsum jólahannyrðum sínum á Bókasafni Akraness, bæði hekl og útsaum af ýmsu tagi. "Þetta hef ég verið að föndra við gegnum árin. Það elsta er frá 1962 en hið yngsta bjó ég til á þessu ári. Ég nýt þess að stunda hannyrðir og það besta sem ég fékk í jólagjöf sem krakki var eitthvað til að sauma." Sýningin á Bókasafni Akraness opnar formlega á fimmtudaginn 24. nóvemnber kl. 16:00 og eru allir velkomnir í kaffi, pönnukökur og kleinur. Hún verður uppi um aðvetuna.

Svöfusalur - umsóknarformið komið í lag!

Loksins, loksins er umsóknarformið komið í lag. Það hefur ekkert breyst og er enn á sama stað - undir umsóknir hér á forsíðunni.